Gísli Lárusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2005 kl. 17:25 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2005 kl. 17:25 eftir Frosti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Lárusson (fæddur 16. febrúar 1865 á Kornhóli í Vestmannaeyjum, dáinn 27.september 1935). Hann var bóndi, gullsmiður og útgerðarmaður í Stakkagerði

Gísli nam gullsmíði og tók sveinsbréf 1885. Hann starfaði sem gullsmiður og úrsmiður í Eyjum. Jafnframt var hann bóndi í Stakkagerði og formaður á árabát og fróðleiksmaður. Hann var fjölfróður um sögu byggðarlagsins og sérstaklega um dýralífið í sjónum kringum Eyjarnar og fuglalífið í björgum þeirra. Gísli tók saman mikið örnefnasafn sem hefur verið varðveitt í handritasafni Fornleifafélagsins og hjá Örnefnastofnun Íslands. Þetta örnefnasafn hans var notað m.a. af Þorkeli Jóhannessyni sem tók saman rit um Örnefni í Vestmannaeyjum. Hluti Örnefnasafns Gísla birtist einnig hér víða á þessum vef.

Hann átti sæti í hreppsnefnd og sýslunefnd, var í stjórn ýmissa félaga í Vestmannaeyjum s.s. Ísfélags, Björgunarfélags, togarafélagsins Draupnis og kaupfélagsins Herjólfs. Hann var framkvæmdastjóri kaupfélagsins Bjarma í 10 ár. Hann var einn af stofnendum Framfarafélags Vestmannaeyja

Gísli var meðlimur Góðtemplarareglunnar í 50 ár.


Eiginkona og afkomendur

Eiginkona hans hét Jóhanna Sigríður Árnadóttir, sem var dóttir Diðriks Árnasonar.

Árið 1869 fluttu þau hjónin að Búastöðum og settust þar að í gamla bænum. Árið 1893 tóku þau svo við Stakkagerðisjörðinni og hófu að byggja þar.

Börn Gísla og Jóhönnu sem komust upp voru: Árni kaupmaður, Georg kaupmaður, Theódóra, Lárus og Kristín.


Heimildir


  • Páll Eggert Ólafsson. Íslenskar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940, V. bindi. Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag, 1952.
  • Ýmsir. Gullsmiðatal 1991, Reykjavík, Félag íslenskra gullsmiða, 1991.
  • Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, Ársrit Vestmannaeyja 1972, Vestmannaeyjum, Þorsteinn Þ. Víglundsson, 1972.