Vilpa

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 22:32 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 22:32 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Vilpa var eitt af fjórum vatnsbólum í Vestmannaeyjum. Hún stóð sunnan við Vilborgarstaði og fyllt var upp í hana árið 1972 eftir að barn hafði drukknað þar. Vilpa fór undir hraun árið 1973.

Nokkrar þjóðsögur tengjast Vilpu eins og þjóðsagan um Herjólf og Vilborgu. Í Krukkspá sagði að gerðust þrír atburðir samtímis í Vestmannaeyjum, myndu Tyrkir ræna þar á ný. Þessir atburðir voru: 1) Að byggð færi vestur fyrir Hástein. 2) Að vatnsbólið í Vilpu legðist af. 3) Að biskupssonur vígðist til prests í Vestmannaeyjum.

Árið 1973 hafði tvennt af þessu gerst, byggðin var komin vestur fyrir Hástein og fyllt hafði verið upp í Vilpu. Og stutt var í þriðja atburðinn, þar sem séra Karl Sigurbjörnsson, biskupssonur, hafði sótt um prestsembætti í Eyjum. Raunar rændu Tyrkir ekki en annar atburður átti sér stað, eldgosið í Heimaey, og vildu einhverjir tengja það við Krukkspána gömlu. Í raun stenst það ekki þar sem séra Karl hafði ekki vígst hingað þegar gosið hófst.