Stakkagerði

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. nóvember 2005 kl. 10:39 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. nóvember 2005 kl. 10:39 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Stakkagerði var bær á Stakkagerðistúni, líklega á þeim stað þar sem Alþýðuhúsið er í dag, og dregur túnið nafn sitt af bænum.

Sögufrægasti einstaklingurinn sem bjó þar mun hafa verið Guðríður Símónardóttir, eða Tyrkja-Gudda eins og hún var yfirleitt kölluð eftir heimkomu hennar frá Algeirsborg, en hún var numin brott frá Vestmannaeyjum í tyrkjaráninu árið 1627. Raunar skilaði hún sér aldrei aftur til Vestmannaeyja, heldur giftist hún Hallgrími Péturssyni, presti, og bjó með honum í Hvalfirði til æviloka. Eftir brottnám hennar bjó maður hennar, Eyjólfur Sölmundarson, þar, en hann dó einhverjum árum síðar er hann drukknaði.