Arnarholt
Húsið Arnarholt stendur við Vestmannabraut 24. Upphaflegt heiti hússins var Stakkahlíð, eftir Stakkahlíð í Loðmundarfirði, en þegar Sigurður, apótekari frá Arnarholti, keypti húsið nefndi hann það Arnarholt. Þar hefur Apótek verið rekið í fleiri áratugi. Húsið var byggt árið 1905 af Guðjóni Þorvaldssyni.