Sólheimar
Húsið Sólheimar stóð við Njarðarstíg 15. Húsið var byggt árið 1907 af Steini Sigurðssyni. Þar var á síðustu öld veslnun Óla Hóla, föður Sigríðar kaupkonu sem ætíð var kennd við heimili sitt og kölluð Sigga sól. Hún giftist Magnúsi sem fékk viðurnefni í sama stíl og eiginkonan og var kallaður Maggi máni. Húsið fór undir hraun í Heimaeyjargosinu.