Brynjólfur Guðlaugsson (Lundi)
Brynjólfur Guðlaugsson var sjómaður og sigldi í stríðinu á Helga. Tók skipstjórapróf, í Ve. 1941 og í Sjómannaskólanum í R.vík 1944. Var stýrimaður á m/s Fell í fiskfluttningum 1945-1946 ( og skipstjóri vetur 1947 ?) Háseti og afleysingastýrimaður á b/v Bjarnarey 1948-1949. Tók út af Bjarnarey og drukknaði 26.des. 1949. Eiginkona Brynjólfs var Rósa Stefánsdóttir, þau byggðu Hásteinsveg 56.
Heimildir
Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.