Berg
Húsið Berg stóð upphaflega við Bárustíg 4 og var reyst árið 1912 en var fært seint á sjötta áratugnum að Vesturvegi 23b. Húsið Berg byggðu Jónína Ástgeirsdóttir frá Litlabæ, fædd 4.júlí 1884, dáin 8.mars 1917, af barnsförum, barnlaus, og Sigurjón Jónsson frá Moldnúpi V-Eyjafjöllum, fæddur 15.apríl, 1884, drukknaði 9.október 1909. Hilmar Sigurbjörnsson, Himmi Ninon, átti húsið frá því að það var flutt. Þar bjó hann ásamt konu sinni, Jónínu Ingibergsdóttur, og fjórum börnum; Sigurbirni, Kristjáni, Katrínu og Árna. Jónína seldi Viðari Sigurbjörnsyni frá Akureyri húsið árið 2005.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Þórður Jónsson, kona hans Kristín og dóttir þeirra Bergþóra
- Hjörtþór Hjörtþórsson
- Sigurbergur Benediktsson og fjölskylda
- Hilmar Sigurbjörnsson og fjölskylda
- Viðar Sigurbjörnsson
Heimildir
- Bárustígur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.
- Vesturvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.