Sveinbjörn Á. Benónýsson
Sveinbjörn Ágúst Benónýsson fæddist 8. ágúst 1892 og lést 31. maí 1965. Hann bjó á Brekastíg.
Sveinbjörn var ljóðskáld og samdi meðal annars ljóð um Heimaklett:
Heimaklettur
- Heimaklettur, hátt þú rís
- hrauns með gretta dranga.
- Högg þér réttir hrannadís,
- hörð og þétt á vanga.
- Þú mátt brjóta storma stál
- straumum móti gnafinn,
- spyrna fótum Atlants-ál,
- ölduróti kafinn.
- Margra alda rún við rún
- ristur gjaldamegin.
- Upp í kaldan beitir brún,
- bárufaldi þveginn.
- Þegar hrína hret á kinn,
- hreggið hvín á skalla.
- Norðri krýnir konunginn
- köldu líni mjalla
[...]
- Sveinbjörn Á. Benónýsson