Hallgrímur Þorsteinsson
Hallgrímur Þorsteinsson, söngkennari, var fæddur 10. apríl árið 1864. Hallgrímur var organisti, söngkennari og stjórnandi lúðrasveitar og kóra. Hann var einn af fyrstu hvatamönnum af stofnun Lúðrasveitar Reykjavíkur. Söngkennari í Reykjavík á þriðja og fjórða áratug 20. aldar. Hallgrímur stjórnaði lúðrasveitinni í Vestmannaeyjum í þrjú sumur, frá 1925 – 1927.