Hátíðarnótt í Herjólfsdal
- Hittumst bræður, í Herjólfsdal
- hátíðarkvöld æskan á völd.
- Fyllum háreistan fjallasal
- fagnaðarsöng nóttin er löng.
- Við drekkum glæsta guðaveig,
- glaðir tæmum lífsins skál í einum teig.
- Vonir rætast við söngvaseið,
- sorgir og þraut líða á braut,
- Gleðin brosir nú björt heið,
- bjargfugla hjal ómar í dal.
- Á Fjósakletti brennur bál;
- böndum ástar tengir nóttin sál við sál.
- Lag: Oddgeir Kristjánsson
- Texti: Árni úr Eyjum.