Hve dátt er hér í dalnum
- Hve dátt er hér í Dalnum inni,
- er dagur lýkur göngu sinni
- og rökkrið hylur rósavanga,
- ó, rómantískt er hér að ganga
:um götur þær er gekk ég forðum
- og gladdi þig með ástarorðum.
:þá kveikir Siggi kyndla sína
- í kynjabirtu fjöllin skína!
- Á bálið vörpum sorg og sút,
- syngjum meðan brennur
:dönsum villt og drekkum út,
- dagur þar til rennur.
- Hve dátt er hér í dalnum inni,
- er dagur lýkur göngu sinni
- og þegar ljómar bálið bjarta,
- þá birtir yfir hverju hjarta.
- Lag: Oddgeir Kristjánsson
- Texti: Ási í Bæ