Blik 1938, 3. tbl./Forustumenn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2009 kl. 14:46 eftir ZindriF (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2009 kl. 14:46 eftir ZindriF (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Séra Jes A. Gíslason
Séra Jes A. Gíslason
Magnús Guðmundsson, Vesturhúsum
Magnús Guðmundsson, Vesturhúsum



Blik birtir að þessu sinni myndir af tveim helztu forustumönnum stúkunnar „Báru“, þeim séra Jes A. Gíslasyni kennara og Magnúsi Guðmundssyni bónda.
Magnús hefur starfað í „Báru“ samfleytt í 45 ár og síra Jes í 31 ár. Báðir eru þeir fæddir og uppaldir í Eyjum, jafngamlir, fermdir saman (þá aðeins þeir tveir), og starfað hafa þeir saman í sönnum bróðurhug með staðfestu og einlægni fyrir sitt hjartans mál, bindindismálið. Margir ágætir menn og konur hafa hjer lagt hönd á plóginn með þeim, en þeir hafa fastast og lengst staðið og starfað allra Goodtemplara í Eyjum.