Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk
Fara í leit
- Jafnan hefur verið talið, að remit væri í Yztakletti. Einhverju sinni var Guðrún Laugudóttir við heyskap í Yztakletti. Var hún þar ein manna, en hafði hund sinn með sér. Svaf hún í veiðimannabólinu, en hundurinn lá utandyra. Nótt eina vaknaði hún við hávaða mikinn út fyrir. Var hundurinn alveg trylltur. Er þetta hafði gengið nokkra stund, varð allt í einu dauðaþögn. Í sömu svifuum var hundinum fleygt inn til hennar. Þegar hún fór að gæta að, sá hún, að hundurinn var steindauður. Hafði hann verið skorinn á háls.
- Almenn sögn
Heimildir
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum