Ólafur Halldórsson (læknir)
Ólafur Halldórsson var læknir 1938 til 1957. Fæddur í Vestmannaeyjum 4. desember 1906. Foreldrar: Halldór Gunnlaugsson héraðslæknir þar og kona hans Anna Sigrid Threp. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1927. Las læknisfræði við Kaupmannahafnarháskóla, en settist í læknadeild Háskóla Íslands og lauk þaðan læknisprófi 1935. Starfaði sem kandidat á sjúkrahúsum í Danmörku, en kom til Vestmannaeyja 1938 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt aðstoðarlæknir við sjúkrahúsið þar. Var skipaður héraðslæknir í Súðavíkurhéraði 1957 og síðar í Bolungarvíkurhéraði. Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Erna maría dóttir Mads Peters vélstjóra í Kaupmannahöfn. Síðari kona hans er Guðbjörg Magnúsdóttir sjómanns í Bolungarvík.
Heimildir
- Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930