Halldór Gunnlaugsson (héraðslæknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 08:54 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 08:54 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Gunnlaugsson, héraðslæknir 1906 til 1924. Fæddur á Skeggjastöðum á Langanessströnd. Foreldrar hans voru Gunnlaugur Halldórsson prestur að Breiðabólstað í Vesthópi og kona hans Margrét Andrea Lúðvíksdóttir Lárussonar Knudsen. Varð stúdent í Reykjavík 1897 og cand. med. frá Háskóla Íslands 1903. Starfaði í Köbenhavns-Amtsjúkrahúsi 1903 og sem aðstoðalæknir á Akureyri 1903-1905. Skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum 1906 og gegndi því embætti þar til han drukknaði við skyldustörf sín í hinu mikla sjóslysi sem varð við Eiðið 16. mars 1924. Hann var franskur ræðismaður og starfaði sem yfirlæknir á franskaspítalanum sem rekinn var í Eyjum um alllangt skeið í húsinu sem nú er Kirkjuvegur 20. Kona hans var Anna Sigrid Threp og áttu þau fjögur börn og eru allmargir afkomendur þeirra búsettir í Vestmannaeyjum.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930