Ólafur Diðrik Sigurðsson
Ólafur Diðrik Sigurðsson, útvegsbóndi á Strönd, f. 12. febrúar 1881 í Vestmannaeyjasókn, d. 4. október 1944.
Kona hans var Guðrún Bjarnadóttir, f. 13. janúar 1879 í Holtssókn, Rang, d. 17. nóvember 1954.
Þau eignuðust 10 börn.
Sigurður Gunnar, f. 19. maí 1903 d. 24. febrúar 1924
Bjarni Júlíus, f. 1. júlí 1905 d. 13. maí 1981
Guðrún, f. 27. október 1906 d. 19. desember 1995
Einar, f. 1. maí 1910 d. 23. mars 1967
Ingibjörg, tvíburi við Einar, f. 1. maí 1910 d. 4. apríl 1913
Guðrún Lilja, f. 30. júlí 1911 d. 2. apríl 1993
Ingibjörg Gyða, f. 9. júlí 1914 d. 21. apríl 1951
Jórunn Ella, f. 20. júlí 1918 d. 15. apríl 1942
Guðný Unnur, tvíburi við Jórunni Ellu, f. 20. júlí 1918 dó ung.
Erla Unnur, f. 22. nóvember 1922 d. 9. júní 1991
Þessi mynd er líklega tekin um 1926 og voru þá þrjú úr systkinahópnum látin en þau sem á myndinni eru náðu öll fullorðinsaldri.
Foreldrar Ólafs Diðriks voru:
Sigurður Ólafsson í Vegg, f. 10. október 1860 d. 10. mars 1931
Guðrún Þórðardóttir f. 19. ágúst 1849 d. 12. júní 1921.
Hann var eina barn þeirra hjóna.
Foreldrar Guðrúnar Bjarnadóttur voru:
Bjarni Jónsson, f. í Langholtssókn, Meðallandsþingi, V-Skaft. 1. desember 1830 d. 11. júlí 1900
Guðrún Arnoddsdóttir, f. í Eyvindarhólasókn 30. apríl 1843 d. 9. nóvember 1901
Hún var ein tíu systkina.
Stuðst var við upplýsingar úr Íslendingabók, Morgunblaðinu og munnlegar heimildir.