Kristinn Ólafsson (bæjarstjóri)
Kristinn Ólafsson var fæddur í Reykjavík 21. nóvember 1897. Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson, verslunarstjóri, og Sigríður Eyþórsdóttir.
Kristinn útskrúfaðist með lögfræðipróf frá Háskóla Íslands árið 1923. Næsta ár var hann kosinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og gegndi því til ársloka 1928. Þá tók hann við sem fyrsti bæjarstjóri í Neskaupsstað. Eftir það gegndi hann ýmsum verkefnum bæði í Vestmannaeyjum og í Reykjavík. Kristinn lést 18. október 1959.
Kona Kristins hét Jóna Jóhanna Jónsdóttir.