Árni Stefánsson (Ási)
Árni Stefánsson, póstmaður var félagsmaður í Taflfélagi Vestmannaeyja upp úr seinna stríði og tefldi m.a. með sveit félagsins á móti sveit Reykjavíkur 1945. Árni fæddist 11. október 1919 og lést 8. mars 1994.
Árni varð Skákmeistari Vestmannaeyja tvö ár í röð, 1958 og 1959. Hann fluttist seinna til Reykjavíkur og varð m.a. kunnur af því að semja skákdæmi sem birtust bæði í blöðum hér og í tímaritum erlendis. Árni var um tíma meðal fremstu skákmanna Reykjavíkur og stundaði talsvert bréfskák. Hann var einn af stofnendum tímaritsins Skák 1947 og stóð að útgáfu þess í tvö ár. Árni varð Íslandsmeistari í bréfskák 1982.