Magnús Jónsson (Sólvangi)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Jónsson“
Magnús Jónsson, Sólvangi, fæddist í Borgarfirði þann 1. september árið 1875 og lést 6. febrúar 1946. Kona hans var Hildur Ólafsdóttir. Kristinn Magnússon var sonur þeirra. Fjölskyldan fluttist frá Seyðisfirði til Vestmannaeyja árið 1915.
Magnús fór til Vestmannaeyja árið 1912 og hóf formennsku árið 1914 með Ásdísi og var síðan formaður óslitið til ársins 1934.
Magnús var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1929.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.