Bólstaður
Húsið Bólstaður sem stóð við Heimagötu 18 var byggt árið 1908 af Brynjólfi Stefánssyni, skósmið. Kona Brynjólfs var Halla Jónsdóttir frá Dölum og sonur þeirra var Jóhannes G. Brynjólfsson forstjóri Ísfélags Vestmannaeyja til margra ára.
Þegar byrjaði að gjósa bjuggu í húsið við Heimagötu 18, hjónin Hafsteinn Ágústsson og Íris Sigurðardóttir ásamt börnum sínum Erni, Ágústu, Aðalheiði og Láru.
Heimildir
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.