Bárustígur 17
![](/images/thumb/8/8c/Sparisjodurinn_new_marked.jpg/300px-Sparisjodurinn_new_marked.jpg)
Húsið við Bárustíg 17 var byggt árið 1962. Byggingin er í dag nýtt sem skrifstofuhúsnæði en var um tíma húsnæði Byggðasafns Vestmannaeyja (um 1973). Einnig hefur það hýst skrifstofu Bæjarfógeta (til 1980).
Í dag er í húsinu starfandi Sparisjóður Vestmannaeyja og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte & Touche. Árið 1992 var húsið sameinað húsnæði verslunarinnar Mózart.
Heimildir
- Bárustígur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.