Bernódus Þorkelsson
Bernódus Þorkelsson fæddist 3. júní 1920 og lést 11. febrúar 1957. Hann bjó á Kirkjuvegi 11, Borgarhóli.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Bernódus:
- Bernótus karfa krusar,
- knár þó að ýfist bára,
- Þorkeli bragn er borinn,
- baldinn við sjó og kaldur.
- Spyrðling á Hilmi hirðir,
- hafið þó stormur skafi.
- Garpurinn glímu snarpur,
- góðan á formanns hróður.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.