Strandvegur 30
Húsið sem stendur við Strandveg 30 var byggt árið 1964. Upphaflega var húsið notað undir fiskverkun og var þá í eigu Ísfélagsins en síðar var hurðaverksmiðja þar til húsa. Nú er þarna til húsa verslunin Miðstöðin sem er byggingarvöruverslun og verkstæði pípulagna.
Heimildir
- Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.