Íris Róbertsdóttir
Íris Róbertsdóttir er fædd 11. janúar 1972. Maður hennar er Eysteinn Gunnarsson. Eiga þau tvö börn en fyrir átti Eysteinn son.
Íris hóf störf í Hamarskóla árið 2000 sem leiðbeinandi. Sama ár hóf hún kennaranám í fjarnámi. Hún útskrifaðist sem kennari frá Kennaraháskóla Íslands árið 2004.
Árið 2006 hlaut Íris verðlaun þegar Íslensku menntaverðlaunin 2006 voru veitt. Íris var verðlaunuð fyrir að hafa í upphafi kennsluferils síns, sýnt hæfileika og lagt alúð í starf sitt. Íris tók við verðlaununum úr hendi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar.