Auður Eiríksdóttir
Auður Eiríksdóttir fæddist að Borgum í Þistilfirði í Norður-Þingeyjarsýslu 20. september 1902 og lézt í Reykjavík 8. júlí 1979.
Faðir hennar var Eiríkur bóndi og smiður í Brekknakoti, Borgum, Kollavík, síðar á Höskuldarnesi, en síðast á Grasgeira á Melrakkasléttu, f. 14. (k.bók 11.) júlí 1871, d. 9. ágúst 1921, Kristjánsson bónda á Bægisstöðum í Þistilfirði Eiríkssonar og konu Kristjáns, Aðalbjargar Bjarnadóttur. Kristján afi Auðar tók á móti börnum. Móðir Auðar var Þorbjörg húsfreyja, f. 11. sept. 1870, d. 14. apríl 1949, Guðmundsdóttir bónda í Klifshaga í Axarfirði Þorvaldssonar og konu Guðmundar, Kristínar Bjarnadóttur Bucks, Nikulássonar Bucks.
Maki (24. okt. 1936): Karl húsasmíðameistari í Eyjum og síðar í Reykjavík, f. 3. maí 1911 í Haga í Aðaldælahreppi í S-Þingeyjarsýslu, d. 27. desember 1994, Jakobsson bónda í Haga, Þorgrímssonar og maka Jakobs, Rannveigar Jónasdóttur.
Börn þeirra Karls: Þráinn byggingaverkfræðingur í Reykjavík, f. í Eyjum 9. júní 1938, kvæntur Birnu Magnúsdóttur handavinnukennara, f. 16. des. 1935; Örlygur þjóðfélagsfræðingur og framhaldsskólakennari, skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, f. 2. maí 1945 í Eyjum, kvæntur Steingerði Jónsdóttur skólaritara, f. 10. apríl 1945.
Nám og störf
Auður lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 25. júní 1925. Hún stundaði framhaldsnám við Fæðingarstofnun Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn 5. ágúst 1931-14. maí 1932. Sumarið 1934 var hún á námskeiði um meðferð og eftirlit ungbarna á Klinik Dr. J. P. Jensen í K.höfn.
Hún var ljósmóðir í Raufarhafnarumdæmi 16. júlí 1925-1930; á Landspítalanum 30. maí 1932-1. nóvember 1933; í Eyraumdæmi í Patreksfirði 1. nóv. 1933-maí 1934.
Þá var hún ljósmóðir í Eyjum 1. nóvember 1934-30. okt. 1945. Frá 1946 vann hún við afleysingar í Reykjavík og var starfandi ljósmóðir þar.
Ritverk: „Þorbjörg Guðmundsdóttir frá Klifshaga“ í greinasafnið Móðir mín húsfreyjan.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Garður.is.
- Kennaratal á Íslandi. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988. * Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík. Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
- Auður Eiríksdóttir. „Þorbjörg Guðmundsdóttir frá Klifshaga“ í bókinni Móðir mín húsfreyjan. Reykjavík: Skuggsjá, 1977. bls 95-114.
- Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja I. Reykjavík: 1946. bls.150.
- Verkfræðingatal. Reykjavík: Þjóðsaga, 1996.
- Þráinn Karlsson, viðtal.