Árni Oddsson (Burstafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. september 2006 kl. 13:21 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. september 2006 kl. 13:21 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni OddssonBurstafelli var fæddur að Búastöðum í Vestmannaeyjum 6. maí 1888 og lést 16. júní 1938. Foreldrar hans voru Oddur Árnason og Jóhanna Lárusdóttir. Árni ólst upp hjá föðurforeldrum sínum að Oddstöðum, Árna Þórarinssyni og Steinunni Oddsdóttur.

Ungur byrjaði Árni að stunda sjóinn á Halkion hjá Hannesi Lóðs og var með honum þar til vélbátarnir komu til Vestmannaeyja.

Árni var sjómaður á þeim fyrstu vélbátum sem til Eyja komu, fyrst á Ögðu (7 tonn) árið 1912 en síðar á Ísak. Árni var auk þess umboðsmaður Brunabótafélags Íslands.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 1 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.