Ástþór Matthíasson
Ástþór Matthíasson fæddist 29. nóvember 1899 á Seyðisfirði og lést 7. desember 1970. Kona hans var Jóhanna Sigríður Gísladóttir.
Ástþór fluttist til Vestmannaeyja eftir lögfræðipróf árið 1924. Hann vann meðal annars sem fulltrúi í verslun Gísla J. Johnsen sem var tengdafaðir hans. Hann var eigandi og framkvæmdarstjóri Fiskimjölsverksmiðju Vestmannaeyja. Ástþór sat í bæjarstjórn frá 1934-1946 og var forseti bæjarstjórnar allan þann tíma.
Myndir
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.