Elliðaey
Höskuldur í Elliðaey
Ýmsar sögur eru til úr Elliðaey, en ein þeirra hljómar á þá leið:
- Einhvern tíma fyrir löngu var margt fólk við slátt í Elliðaey. Þar á meðal var vinnukona sem hét Guðrún Höskuldsdóttir. Á almæli var að þessi kona var ekki ein saman og hún hafði orðið léttari í Elliðaey um sláttinn. Hún bar barnið út og faldi það í helli einum í lundabyggðinni skammt austur af Nautaréttinni. Þessi útburður var nefndur Höskuldur eftir föður móðurinnar og hellirinn síðan Höskuldarhellir því að útburðurinn hafðist þar við.
- Þessi útburður gerði lundamönnum og sláttumönnum ónæði með væli sínu á nóttum, einkum þó þegar gekk á með illvirði. Þá heyrðist útburðarvælið frá hellinum langt að.
- Sögn Gísla Lárussonar í Stakkagerði