Einar Runólfsson (formaður)
Einar Runólfsson fæddist 25. desember 1918. Hann var formaður á Ísleif VE 63.
Loftur Guðmundsson orti formannavísu um Einar:
- Einar af keppni æskumanns
- Ísleifi af hrönnum beitir
- aflasæld og heppni hans
- hróðurinn með réttu veitir.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Einar:
- Einar Runólfs reiðan sæ
- rennir lýð til bjargar,
- happa ferðir hefur æ
- hann á sjónum margar.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.