Þorgeir Jóelsson
Þorgeir Jóelsson, Fögruvöllum og Sælundi, var fæddur á Vesturhúsum í Vestmannaeyjum 15. júní 1903 og lést 13. febrúar 1984. Foreldrar hans voru Jóel Eyjólfsson og Þórdís Guðmundsdóttir.
Þorgeir hóf ungur sjómennsku en formennsku byrjaði Þorgeir árið 1925 með Lunda I. Eftir þá vertíð kaupir Þorgeir ásamt fleiri mönnum Lunda II og var formaður með hann yfir 30 vertíðir. Einnig var Þorgeir formaður á Hörpu, Hrafni og Von II.
Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þorgeir:
- Fyrir þrótt sinn þor og fjör
- Þorgeir orðstírs nýtur,
- er Lundinn hlaðinn heim að vör
- hvíta kólgu brýtur.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.