Sigurður Gunnarsson (handboltamaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 09:25 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 09:25 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Gunnarsson er fæddur 11. september 1959. Kona hans er Magnea Björk Ísleifsdóttir. Þau eiga fjögur börn, Ísleif, Sólveigu, Sólbjörtu og Silju. Fjölskyldan býr í Kópavogi og starfar Sigurður hjá ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn.

Sigurður hefur leikið handbolta með mörgum félagsliðum bæði innlendum og erlendum og á fjölda marga landsleiki að baki. Var hann af mörgum talinn vera á meðal bestu leikmanna í heimi á sínum yngri árum. Hann hefur bæði leikið með og þjálfað meistaraflokk karla ÍBV. Sigurður var kjörinn íþróttamaður Vestmannaeyja árið 1989.