Eiríkur Ásbjörnsson
Eiríkur Ásbjörnsson, Urðavegi 41, fæddist 21. maí 1893 á Eyrarbakka og lést 22. nóvember 1977. Hann var kvæntur Ragnheiði Ólafsdóttur í Eiríkshúsi og eignuðust þau þrjú börn.
Árið 1919 fluttist Eiríkur til Vestmannaeyja og byrjar hann formennsku tveimur árum síðar á Emmu sem hann keypti nýjan. Formennsku stundaði hann á Emmu fram á fjórða áratuginn. Hann var jafnan kallaður Emmu-Eiríkur, vitaskuld eftir bátnum. Eftir formennskuárin stundaði Eiríkur útgerð.
Eiríkur tók mikinn þátt í félagsstörfum útvegsmanna í Vestmannaeyjum og sat hann í stjórnum margra félaga.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.