Eiríkur Ásbjörnsson
Eiríkur Ásbjörnsson, Urðavegi 41, fæddist 22. maí 1893 á Stokkseyri. Árið 1919 fluttist Eiríkur til Vestmannaeyja og byrjar hann formennsku tveimur árum síðar á Emmu sem hann keypti nýjan. Formennsku stundaði hann á Emmu fram á fjórða áratuginn. Eftir það stundaði Eiríkur útgerð.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.