Náttúrustofa Suðurlands
Helstu hlutverk Náttúrustofu Suðurlands eru meðal annars að stunda vísindalegar rannsóknir á náttúru Suðurlands, stuðla að æskilegri landnýtingu, náttúruvernd og fræðslu um umhverfismál bæði fyrir almenning og í skólum á Suðurlandi og að veita Vestmannaeyjabæ og öðrum sveitarfélögum á Suðurlandi umbeðna aðstoð og ráðgjöf á verksviði stofunnar til dæmis vegna nýtingar náttúrulegra auðlinda.
Á meðal verkefna sem Náttúrustofa Suðurlands hefur verið að sinna er náttúrufarslýsing Vestmannaeyja vegna aðalskipulags Vestmannaeyja 2002-2014 og fæða og afkoma lundans í Vestmannaeyjum.
Forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum er Ingvar Atli Sigurðsson. Náttúrustofan er til húsa að Strandvegi 50.
Heimildir