Ársæll Sveinsson (Fögrubrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 10:16 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 10:16 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ársæll Sveinsson fæddist 31. desember 1893 í Vestmannaeyjum og lést 14. apríl 1969. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson trésmíðameistari og Guðrún Runólfsdóttir. Kona hans var Laufey Sigurðardóttir.

Ársæll var útgerðarmaður frá árinu 1912 og var formaður í fjöldamörg ár á eigin bátum. Ársæll var stofnandi Skipasmíðastöðvar Vestmannaeyja árið 1940 og rak umfangsmikla timburverslun og fiskverkun. Ársæll var auk þess forseti bæjarstjórnar 1954-1962 og hann er heiðursborgari Vestmannaeyjabæjar.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.