Georg Gíslason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. apríl 2006 kl. 14:53 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. apríl 2006 kl. 14:53 eftir Frosti (spjall | framlög) (ábendingar um Jóhönnu konu Gíslafrá Láru hjá Kirkjulundi, Blik 1965 bls. 184)
Fara í flakk Fara í leit

Georg Gíslason var fæddur þann 24. ágúst 1895 og bjó lengst af ævi sinnar í Stakkagerði. Hann var sonur Jóhönnu Árnadóttur Diðrikssonar hreppstjóra og Gísla Lárussonar frá Stakkagerði.

Árið 1917 hóf Georg verslunarrekstur og verslun sína rak hann þangað til hann lést, þann 27. febrúar 1955. Hann var einn af stofnendum Íþróttafélagsins Þórs og var formaður þess frá stofnun þess til ársins 1932 með nokkrum stuttum hléum, eða alls 17 ár. Hann var sjálfur mikill knattspyrnumaður og keppti m.a. í fyrsta Íslandsmeistaramótinu í knattspyrnu fyrir hönd Knattspyrnufélags Vestmannaeyja árið 1912. Hann stundaði einnig glímu og varð Glímumeistari Vestmannaeyja árin 1920, 1922 og 1923.

Þegar Golfklúbbur Vestmannaeyja var stofnaður árið 1937 var hann þar í forsvari fyrir hópi áhugamanna um þá íþrótt, og varð hann Íslandsmeistari í 1. flokki þar.



Heimildir

  • Íþróttafélagið Þór 70 ára. Afmælisrit félagsins 1983.