Magnús Guðmundsson (Hlíðarási)
Magnús Guðmundsson var fæddur 1. ágúst 1867 í Vestmannaeyjum og dó í ágúst 1949. Foreldrar hans voru Guðmundur Þorkelsson bóndi og Margrét Magnúsdóttir, hjón í Háagarði í Eyjum. Kona Magnúsar var Guðbjörg Magnúsdóttir, dáin 1940. Þau hjón bjuggu lengi að Hlíðarási við Faxastíg.
Heimildir
- Þorsteinn Víglundsson. Saga barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum. Blik. 23. árg. 1962.