Guðjón Jónsson (Hlíðardal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:27 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:27 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Jónsson, Hlíðardal, fæddist 5. desember 1899 að Steinum undir Eyjafjöllum. Guðjón fór fyrst til Vestmannaeyja 16 ára gamall til sjóróðra. Formennsku byrjaði Guðjón árið 1930 á bátnum Siggu. Eftir það var Guðjón með Hebron, Gullfoss og Skuld. Guðjón stundaði mest dragnótaveiði og var einn heppnasti formaður í Eyjum á það veiðarfæri.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.