Grétar Þorgilsson (Grund)
Grétar Þorgils fæddist árið 1926 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Þorgils Þorgilsson og Lára Kristmundsdóttir. Eignuðust þau fimm börn og var Grétar í miðjunni. Kona Grétars var Þórunn Pálsdóttir og áttu þau fimm börn.
Þegar Grétar var 16 ára gamall valdi hann að fara á skó á Erlingi sem Sighvatur Bjarnason var með. Hann var eftir það meira og minna á sjó langt fram eftir ævinni.
Grétar var góður söngmaður og þótti gaman að taka lagið.