Ástgeir Guðmundsson
Ástgeir Guðmundsson, Litlabæ, fæddist á sjötta áratug 19. aldar. Ástgeir flutti alfarið til Vestmannaeyja 1880. Ástgeir var formaður á Sæborgu sem hann smíðaði sjálfur. Var hann með hana í tvær vertíðir en hætti þá formennsku og vann við bátasmíði. Mun Ástgeir hafa smíðað 10 mótorbáta í Eyjum og marga á Stokkseyri.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.