Jakarnir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2006 kl. 10:48 eftir Witzit (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2006 kl. 10:48 eftir Witzit (spjall | framlög) (Haffi)
Fara í flakk Fara í leit

Jakarnir voru stofnaðir 24 febrúar 2003 af nokkrum peyjum sem höfðu mikin áhuga á street-hockey (götuhokkí). Sá sem fór fremstur i flokki af þeim var Sigurður Ingi Einisson. Þeir höfðu mikið verið að leika sér í þessu á plani Íþróttamiðstöðvarinnar um nokkurt skeið áður en þeir ákváðu að stofna Jakana. Fyrsta verkefni sem þeir fóru í var að leita sér að einhverjum til að styrkja þá og svo að fjárfesta í mörkum til að geta spilað almennilega. Sjoppan Ísjakinn var reiðubúið til að styrkja félagið. Þaðan er nafnið þeirra dregið. Mörkin voru svo keypt og notuð til að byrja með á plani Íþróttamiðstöðvarinnar. En fengu svo um veturinn að vera með þau inni og æfa þig í gamla salnum. Þegar veturinn skall á keyptu strákanir sér sérstakanbúnað til að vera í og einnig treyur til að spila í. Áhuginn var orðinn gríðalegur og voru margir sem æfðu þennan vetur með Jökunum. Tíminn sem félagið starfaði var ekki langur eða um 1 og hálft ár. Að sögn Sigurðs Inga stefna þeir að byrja aftur næsta haust ef áhugi verður fyrir því.