Guðjón Þórðarson (Heklu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. desember 2008 kl. 08:47 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. desember 2008 kl. 08:47 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Þórðarson, Heklu, fæddist 16. september 1879 að Götu í Ásahreppi Rangárvallasýslu og lést í apríl 1957. Guðjón byrjaði ungur sjómennsku og árið 1909-1915 var hann formaður með m/b Haffara sem hann átti hlut í. Þá kaupir hann 1/5 hlut í Happasæl ásamt fleirum og hafði formennsku á honum til ársins 1915. Þá lét hann af formennsku, en sá um útgerðina sökum vanheilsu.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.