Óskar Matthíasson (Byggðarenda)
Óskar Matthíasson fæddist í Vestmannaeyjum 22. mars 1921 í Garðsauka.
Óskar hóf sinn sjómannsferil þegar hann var 16 ára á Emmu með Ragnari Þorvaldssyni og sagði Óskar eitt sinn að hann hefði verið rekinn í land eftir um hálfan mánuð fyrir sjóveiki og annan ræfildóm. Hann hélt sig þó ekki nema í eitt ár frá sjónum. Hann var háseti og vélstjóri á hinum ýmsu bátum fram til ársins 1944 þegar hann hefur formannsferil sinn.
Óskar var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1965 og 1966 og 1969 og 1970.
Heimildir
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.