Óskar Matthíasson (Byggðarenda)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. júlí 2006 kl. 14:36 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2006 kl. 14:36 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Óskar Matthíasson fæddist í Vestmannaeyjum 22. mars 1921 í Garðsauka.

Óskar hóf sinn sjómannsferil þegar hann var 16 ára á Emmu með Ragnari Þorvaldssyni og sagði Óskar eitt sinn að hann hefði verið rekinn í land eftir um hálfan mánuð fyrir sjóveiki og annan ræfildóm. Hann hélt sig þó ekki nema í eitt ár frá sjónum. Hann var háseti og vélstjóri á hinum ýmsu bátum fram til ársins 1944 þegar hann hefur formannsferil sinn.

Óskar var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1965 og 1966 og 1969 og 1970.


Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.