Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Nýsmíði Ísfélags Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. september 2018 kl. 13:36 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. september 2018 kl. 13:36 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: Nýsmíði ísfélags Vm. Þ ann 1. nóvember áriö 2007 var undirritaður smíöasamningur á milli ísfélags Vestmannaeyja hf. og skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Talca- h...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Nýsmíði ísfélags Vm.


Þ ann 1. nóvember áriö 2007 var undirritaður smíöasamningur á milli ísfélags Vestmannaeyja hf. og skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Talca- huano í Chile. í febrúar árið eftir var svo undirrit- aður samningur við sömu skipasmíðastöð um smíði á öðru nákvæmlega eins skipi. Skipin eru af nýrri kynslóð uppsjávarfiskiskipa sem norska skipahönn- uarfyrirtækið Rolls-Royce Marine hannar og eru þau af gerðinni NVC-352. Héðinn hf. er umboðs- aðili skipahönnunaraðilans á íslandi og sáu þeir um undirbúning verkefnisins. Þróun skipanna hófst fyrir rúmlega fimm árum og er þegar búið að sjósetja fimm skip þessarar gerð- ar. Má þar nefna norska skipið Knester sem er stór- glæsilegt og hefur reynst afburðavel. Markmið Rolls-Royce Marine við hönnun skips- ins var að hanna skrokk sem væri hagkvæmur og færi vel í sjó, bæöi á siglingu og við veiðar. Einnig var vélbúnaður, aðalvél og skrúfubúnaður, hannaður sem hagkvæmastur fyrir siglingu, veiðar og fiskleit. Útkoman reyndist vera mjög gott og hagkvæmt skip sem notar 10-20% minna eldsneyti en sambærileg eldri skip. Skipin verða 71,10 metrar að lengd og 14,40 metr- arað breidd og ganghraði þcirra um 16 hnútar. Lest- arrými skipana er 2,150 m3 scm tekur 2000 tonn í 10 tönkum, útbúnum öflugu RSW kælikerfi með

afkastagetu upp á 1,2 milljón kílókaloríur. Skipin verða útbúin til nóta- og flottrollsveiða og er aðalvél af gerðinni Bergen-Díesel, 4500 kw eða 6.120 hest- öfl. Engin vinnsla verður í skipunum en með smíði þeirra er verið að styrkja landvinnslu félagsins með það að markmiði að nýta betur hráefni, bæði í land- frystingu og bræðslu. Með þessu er ísfélag Vest- mannaeyja hf. að stíga stórt og metnaðarfullt skref í endurnýjun á uppsjávarflota félagsins. Gert var ráð fyrir því að fyrra skip félagsins kæmi á vordögum 2010 en í kjölfarið á alþjóðlegri íjár- málakreppu seinkar komu fyrra skipsins til lands- ins þar til í árslok 2010, seinna skipið ætti þá að koma um ári seinna. Vinna við fyrra skipið er svo til nýbyrjuð svo að engin mynd er komin á skrokk skipsins. En skipasmíðastöðin ASMAR, sem smíðar skipin, ætti að vera okkur Vestmannaeyingum kunn því Huginn VE 55 var smíðaður í þeirri stöð og kom hann til landsins árið 2001. í stöð þessari hafa auk Hugins verið smíðuð fjögur skip fyrir íslendinga Ingunn AK, Árni Friðriksson RE, Hákon EA og nú síðast nýja varðskipið okkar. Auk þess var hin fær- eyska Norðborg KG smíðuö í þessari stöð. Nánari upplýsingar um skipin og búnað þeirra má finna á heimasíðu Héðins hf.


SJOMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAKYJA