Mosfell

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2005 kl. 11:36 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2005 kl. 11:36 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Mosfell stóð við Túngötu. Sigurður Sigurjónsson, Brekkuhúsi, byggði húsið árið 1912. Kristinn Jónsson, oft kallaður póstur vegna starfs síns, en einnig kenndur við húsið, bjó lengi að Mosfelli ásamt móður sini, Jennýju Guðmundsdóttur. Á Mosfelli var lengi nokkur kúabúskapur og þar var einnig hænsnarækt. Þegar gaus 1973, bjuggu að Mosfelli Eiríkur Sigurðsson frá Hruna og fjölskylda hans. Mosfell brann til kaldra kola á fimmta degi gossins.


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson: Vestmannaeyjar - byggð og eldgos, Reykjavík 1973.