Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Næsta kynslóð gámaflutningaskipa kallar á bætta hafnaraðstöðu í Eyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. febrúar 2018 kl. 14:48 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. febrúar 2018 kl. 14:48 eftir Valli (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
ARNAR SIGURMUNDSSON Formaður framkvæmda- og hafnarráðs Vm.


Næsta kynslóð gáma- flutninsaskipa kallar á bætta hafnaraðstöðu í Eyjum


- líkantilraunir með stórskipakant hefjast í ásúst á þessu ári



N ýlega var þess minnst að öld var liðin frá því sveitarfélagið réðst í sínar fyrstu hafnarfram- kvæmdir með elsta hluta Bæjarbryggjunnar. Um sama leyti fór sá mikli athafnamaður Gísli J. John- sen í að koma upp Edinborgarbryggju, sem var aust- ur af Bæjarbryggju. Þessar framkvæmdir mörkuðu upphaf hafnarframkvæmda í Eyjum sem staðið hafa með hléum fram á þennan dag. Mesti áhrifavald- urinn var vélvæðing bátaílotans í upphafi 20. aldar sem leiddi af sér gríðarlega Ijölgun bæjarbúa. Þess- ara tímamóta var minnst haustið 2007 og birtist meðal annars grein um þetta mikla framfaratímabil í Sjómannadagsblaðinu 2008. Það hefur verið gríðarlegt átak að ráðast í hafn- arframkvæmdir í Vestmannaeyjum fyrir heilli öld. íbúarnir voru innan við eitt þúsund en hafði farið ört tjölgandi og þörfin var knýjandi og framfarahugur í fólki. Höfnin var þá óvarin fyrir austan og suð- austan áttum og því var fljótlega farið í byggingu hafnargarða sem var mikið stórvirki og tók langan tíma. Einhver besta hafnarstaðstaða á landinu. Arin liðu, íbúum íjölgaði enn frekar og bátarnir stækkuðu og kölluðu á meira bryggjupláss. Þá var ráðist í byggingu Básaskersbryggju, því næst Frið- arhafnarbryggju, þá Nausthamarsbryggju og hald- ið áfram framkvæmdum inn í Friðarhöfn. Síðan kom eldgosið með öllum þeim afleiðingum sem því 18 fylgdu. En Eyjamenn gáfust ekki upp og þróunin hélt áfram. Þörf var á stækkun viðlegukanta og var þá farið í byggingu Binnabryggju og síðar Skáans austur af henni. Arið 1982 voru upptökumannvirki hafnarinnar, skipalyftan, tekin í notkun og nokkr- um árum síðar Kleifabryggja, sem er norðan hafn- ar. Síðustu stækkanir viðlegurýmis við höfnina eru lenging löndunaraðstöðu fyrir uppsjávarveiðiskip bæði austast á Nausthamri hjá FES og við aust- urenda Friðarhafnarbryggju hjá FIVE. Afturámóti er nýjasta stórframkvæmd hafnarinnar endurbygg- ing Básaskersbryggju með nýrri þekju og lauk henni í árslok 2008. Mörg stór verkefni eru framundan hjá Vestmannaeyjahöfn Vestmannaeyjahöfn er í senn ein stærsta fiski- skipa- og löndunarhöfnin og um leið mikil upp- og útskipunarhöfn. Gríðarleg stækkun fiskiskipa og þá sérstaklega uppsjávarveiðiskipa kallar á mikið viðlegupláss. Viðlegukantar í Vestmannaeyjum eru rúmlega 2 kílómetrar og er hafnaraðstaöa ein sú allra besta á landinu. Tekjur Vestmannaeyjahafnar hafa verið um 250 milljónir á ári og standa undir öllum hefðbundnum rekstri en íjölþætt þjónusta, við hafn- arvörslu, hafnsögu, hafnarvernd, hafnarvog, rekstur á Lóðsinum og viðhaldsframkvæmdir falla þar und- ir. Allar stærri framkvæmdir hafa verið með stofn- framlagi frá ríkinu af samgönguáætlun. En hver er SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA  staðan í dag og hvað er framundan? Af mörgu er að taka í þeim efnum. Allt frá haustinu 2006 hefur framkvæmda- og hafnarráð veriö aö Ijalla um þrjú stór verkefni sem eru framundan. Endurnýjun á upptökumannvirkjum hafnarinnar t I október 2006 varö mikið tjón á upptökumann- virkjum hafnarinnar þegar hluti skipalyftunnar gaf sig og mikil mildi aö ekki uröu slys á mönnum. Ljóst var í upphafi aö tjónið var gríðarlegt. Þá var ákveðið aö kanna livort ekki væri skynsamlegt að stækka upptökumannvirkin svo þau gætu íekið upp allt að 2500 tonna skip í staö um 1000 tonna áöur. Ekki reyndist Ijárhagslegur grundvöllur fyrir slíku. Alþingi samþykkti voriö 2007 aö heimila bóta- greiðslur til Vestmannaeyjahafnar úr Hafnarbóta- sjóði að tjárhæð 200 millj. kr. Máliö var sent til umsagnar til ESA dómstólsins í Brussel og þaöan kom loks svar í janúar 2009, þar sem allar tjónabætur til hafnarinnar voru bannaðar af samkeppnisástæð- um. Engu breytti þótt tjónabæturnar væru eingöngu ætlaðar til aö bæta núverandi mannvirki, en ekki til þess aö geta tekið upp og þjónustað stærri skip. Þetta varmikið áfall. Fulltrúar stjórnvalda tilkynntu okkur aö í staðinn myndi ríkiö flýta 200 millj. kr.

framlagi til almennra hafnarframkvæmda gegn mót- framlagi Vestmannaeyjahafnar. Á sama tíma hófust viðræður viö forráðamenn Skipalyftunnar um lok 25 ára leigusamnings um upptökumannvirkin frá 1982. Samningi hafði tvívegis verið framlengt um eitt ár í senn vegna tjónsins frá 2006. Nú er búiö aö semja um aö leigusamningurinn falli úr gildi og sama gildir um kaupskyldu Vestmannaeyjahafnar á húseignum Skipalyftunnar. Tókst samkomulag þar um í byrjun apríl sl. og nemur kostnaður hafnarinnar af samkomulaginu liölega 11 millj. króna. Nú er verið aö Ijúka viö ýtarlega kostnaðaráætlun viö uppbyggingu mannvirkjanna og var fenginn til þess verks erlendur sérfræðingur aö nafni John Berry sem þekkir mjög til skipalyftubúnaðar frá Sincrolift, en hann var áður einn af yfirmönnum tæknideildar fyrirtækisins. Dvaldi hann í Eyjum í nokkra daga í apríl sl., fór yfir ástand búnaðar og gerði áætlun um kostnað viö endurbyggingu og breytingar þannig aö lyftan gæti þjónað skipum af sönui stærö og Bergi VE og Gullbergi VE. Veröi samþykkt aö fara í verk- iö má búast viö aö heildarkostnaður geti numið allt aö 300 millj. kr. og er þá gengið út frá því aö ekki þurfi aö endurnýja stálþilið sem er umhverfis upp- tökumannvirkin. Hafnar- og bæjaryfirvöld munu taka afstöðu til málsins þegarmælingum á stálþilinu er lokiö og ýtarlegri kostnaöaráætlun liggur fyrir.  Binnabryggja og Skáinn - endurnýjun stálþils og þekju- Senn fer aö líöa aö því að ráöast þurfi í viðamikl- ar viðgerðir á Binnabryggju og Skáanum austur af henni. Kostnaöaráætlun um nýtt stálþil á bryggj- urnar ásamt nýrri þekju og 10-18 m stækkun Binna- bryggju til austurs liggja nú fyrir frá Siglingastofn- un. Heildarkostnaöur við verkið mun nema um 410 milljónum króna eöa 330 millj. kr. aö frádregnum viröisaukaskatti. Hlutur Vestmannaeyjahafnar væri þá um 130 millj. kr. og ríkisins 200 millj. kr. Sá böggull fylgir skammrifi að ríkisframlagið, þ.e. fjármagnið frá Hafnarbótasjóði að tjárhæð 200 millj. kr., liggur ekki á lausu og þarf að tryggja að hægt verði að ráðast í þessar framkvæmdir á næsta ári. Efnahagshrunið hefur af eðlilegum ástæðum komið niður á framlögum til hafnarframkvæmda á þessu ári og næstu árum. Vestmannaeyjahöfn er með loforð um að 200 millj. kr. komi til hafnarfram- kvæmda í Eyjum þrátt fyrir niðurskurð, enda liggja þessir tjármunir í Hafnarbótasjóði. Þessi mál munu ekki skýrast fyrr en Alþingi hefur tjallað um endur- skoðun samgönguáætlunar 2009-2010 og lokið af- greiðslu ríkisreiknings 2008.

Mat á valkostum við stórskipabryggju í Eyjum Hafnaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa í langan tíma kannað möguleika á því að koma upp stór- skipabryggju. Fyrstu hugmyndir gengu út á það að koma upp stórskipakanti í Skansfjörunni á nýja hrauninu á móts við Klettsvík. Framkvæmdar voru öldu- og straummælingar á vegum Siglingastofn- unar fyrir nokkrum árum. Niðurstöður voru ekki nægilega jákvæðar til að haldið væri áfram með þessa könnun og þóttu tilraunir benda til þess of mikil ölduhreyfing á væri á svæðinu. Ekki var gert ráð fyrir sjóvarnargarði á móts við Klettsvík í þeim tilraunum. Haustið 2006 komu þessi mál til um- ræðu í framkvæmda- og hafnarráði. Fyrirséð var að næsta kynslóð gámaflutningaskipa, sem líkleg er hjá íslensku skipafélögunum, verði 180-190 metra löng og breidd þeirra um 30 metrar. Algengasta stærð gámaflutningaskipa sem nú hafa viðkomu í Eyjum er 130-140 metrar og um 21-22 metra breidd. Með þessar upplýsingar í farteskinu og vaxandi áhuga á að skemmtiferðaskip hafi viðkomu í Eyjum var lagt af stað með könnunarvinnu á nýjan leik. Siglinga- stofnun hefur að beiðni framkvæmda- og hafnarráðs kannað möguleika á að koma upp stórskipakanti í  Eyjurn allt frá vorinu 2007. Þá var þess farið á leit að skoðaóir væru sérstaklega þrír möguleikar, en þeireru eftirfarandi: 1. Framlenging Klcifabiyggju, dýpkun og stytting Hörgaeyrargarðs. 2. Stórskipakantur viö Skansfjöru á móts við Klettsvík og sjóvarnargarður. 3.Sjóvarnargarður með stórskipakanti noröan-vest- an megin á Eiðinu. Allir þessir valkostir kalla á miklar og kostnaöar- samar framkvæmdir að mati sérfræðinga Siglinga- stofnunar. Ekki er ólíklegt að heildarkostnaöur gæti legiðtá bilinu 1,5 til 2,5 milljarðar, miöaö viö núver- andi verðlag. Þá var og er mikil óvissa um aö ríkiö fjármagni slíkar framkvæmdir þar sem heimildir í hafnarlögum og framlög á samgönguáætlun hafa verið skorin mikið niður og var það raunar gert áöur en tjármálakreppan skall á íslandi. Dýrustu þættirnir í þessum framkvæmdum væru bygging sjóvarnar- garða sem kalla á gríöarlega grjótflutninga og einnig erdýpkun viö Kleifaleiðina mjög dýr framkvæmd. Það breytir því ekki að rannsóknir munu halda áfram á þessum valkostum hjá Siglingastofnun á næstu mánuðum. Framkvæmda- og hafnarráð hefur lagt áherslu á aö skoöa stórskipakant noröan Eiö- is sem fyrsta valkost, en Siglingastofnun leggur áherslu á aö skoöa alla þessa kosti og hvern meö fleiri en einni útfærslu. Það eru margir óvissuþættir í þessari vinnu, en straum- og dýptarmælingar hafa farið fram og munu halda áfram á næstu vikum, en áður var búiö aö framkvæma straum- og öldumæl- ingar. einkum í Klettsvík á sínum tíma. Þá liggur fyrir aö líkantilraunir meö stórskipakant

vegna Vestmannaeyjahafnar munu hetjast hjá Sigl- ingastofnun í Kópavogi í ágúst nk. Líkantilraunum vegna Húsavíkurhafnar fer þar senn aö Ijúka og hefst þá vinna viö aö koma upp líkani fyrir Eyjar. Alþing- ismenn Suðurkjördæmis hafa sýnt málinu áhuga og samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu þar um í vetur. Þrátt fyrir aö þá væri búið aö ganga frá sam- komulagi um líkantilraunir viö Siglingastofnun, þá auðveldar áhugi þingmanna og samþykkt tillögunn- ar næstu skref í málinu. Hér er um mikilvægt framtíðarmál aö ræöa og þaö Iangstærsta sem bæjarstjórn og hafnaryfirvöld munu þurfa aö taka afstööu til á næstu árum. Sama hvaöa kostur veröur fyrir valinu þá mun heildarkostnaður viö framkvæmdir veröa mjög mikill. Þar mun því allt ráðast af framlagi af samgönguáætlun ríkisins hverju sinni. Efir rúmlega eitt ár verður Landeyjahöfn tekin í notkun og mun tilkoma hennar gjörbreyta samgöng- um á sjó við Vestmannaeyjar. I þessu kunna aö felast miklir möguleikar til lengri framtíðar, ekki síst veröi þá komin upp stórbætt aöstaöa fyrir gámaflutninga- skip og skemmtiferðaskip í Eyjum. Vestmannaeyja- höfn hefur ítrekaö lýst áhuga á aö koma aö rekstri Landeyjahafnar og samnýta þannig mannafla, skip og tæki Vestmannaeyjahafnar. Af þessari grein má marka aö það eru mörg járn í eldinum hjá Vestmannaeyjahöfn og stjórnendum bæjarfélagsins sem taka þarf afstööu til í næstu framtíð.


SJOMANNADAGSBLAD VESTMANNAF.YJA