Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Með forsjón Guðs í friðarhöfn
Kirkjan í samfélagi fólks við sjávarsíðuna er öðrum þræöi kirkja sæfarenda. Allir fara að ein- hverju marki um hafsins vegu er þeir ferðast en það veldur þó mestu að samfélagið hér í Vestmannaeyj- um byggist á sjósókn. I öðrum mörgum löndum er starfsrækt sérstök sjómannakirkja og sjómannastofa var lengi hér í KFUM&K heimilinu, svo eitthvað sé nefnt. En kirkjan í Eyjum er sjómannakirkja og hingað koma menn ekki aðeins til hafnar með skip sín heldur finna þeir í kirkjuskipinu sínu pláss og örugga leiðsögn um framhaldið í þessu lífi og því sem bíður. Á móti finna hér allir að kirkjan í þessu samfélagi er í tengslum við alla þætti atvinnuhátta og hvers kyns aðstæðna sem upp kunna að koma í einu slíku samfélagi. Hógvær bíður hún hér og býðst til að opna dyr sínar hverjum þeim er leggur hér að landi og hverjum þeim er tilheyrir þessu iðandi fjöl- breytilega mannlífi. Svo augljóst er hlutverk kirkjunnar í samfélaginu að trúhneigðum mönnum annarra þjóöa kemur það fyrst til hugar að skoða kirkjur eyjanna þegar þeir hafa hér viðdvöl. Fyrir því er t.d. Landakirkja opin hluta úr degi hverjum og verður svo einnig í sumar. Og ég hef tekið eftir því á liönum árum að sumir koma til að fá næði að biðja og þakka forsjón Guðs. Aðrir koma til að sjá gamalt guðshús. Enn aðrir koma til að sjá hvernig samfélagið tjáir trúarvitund sína í búnaði kirkjunnar, helgimunum og táknmynd- um trúarinnar. Þeir sjá um leið hversu mikla alúð fólk leggur við helgidóm sinn, en þar geta allir menn séð nokkuð, hverrar trúar sem þeir annars eru sjálf- ir. Með kirkjunni og umgjörð hennar birtist leynt eða Ijóst sú virðing sem samfélagið ber fyrir þeim almættisguði sem rjkir í hjörtum heimamanna. Og það er meira að sjá. í kirkjunni sést líka hvernig saga eyjanna er samofin helgidómnum. I Landakirkju eru kennileiti er vísa ekki aðeins aftur til jarðeld-
anna 1973 heldur allt aftur til Tyrkjaránsins á 17. öld. Þau kennileiti vísa til þess hjálpræðis og þeirrar verndar sem samfélagið í heild sinni þakkar Guði sínum. Aðrar kirkjur eiga ýmsa aðra snertifleti við söguna og umbreytingar í samfélaginu. Þannig vísar Hvítasunnukirkjan núna til umbreytinga með því að það hús var áður aðalsamkomuhúsið og skemmti- staður Eyjamanna. Það var síðan helgað guðsdýrk- un. Aðventkirkjan vísar öðrum þræði til samfylgdar kirkju og skóla með húsinu einu saman og þannig mætti lengi telja því saga safnaðanna er meira en merkileg. Ár hvert er safnast saman á sjómannadag í Landa- kirkju til að þakka forsjón Guðs og til að endurnýja helgun af hendi hans. í sjómannadagsráði hafa menn lagt áherslu á sjómannamessu. Það er einstök guös- þjónusta allra manna í þessu samfélagi. Það blasir hvað skýrast við í lok athafnarinnar þegar fulltrú- ar sjómanna leggja blómsveig að minnisvarða um drukknaða og hrapaða. Sá minnisvarði er einnig helgaður minningu þeirra er hvíla annars staðar en hér í helgum reit í Eyjum. Allt þetta hefur djúpa og innilega merkingu í hugum þeirra er á annað borð eru hluti afsamfélagi eyjamanna. Enn og aftur fögn- um við á hátíðisdegi sjómanna. Það sem er sérstakt við fögnuðinn á sjómannadag í Vestmannaeyjum er að þessi fögnuður nær til samfélagsins í heild sinni. Fagnaðarerindið um Jesú Krist er partur af þeirri djúpu gleði sem ríkir vissulega í sálu samfélagsins. Einnig er hér hinn augljósi fögnuður, sem er gleðin yfir því að geta glaðst saman enn þetta ár. Enn hefur forsjón Guðs lofað okkur að hittast heil og lifa þessa stund í friðarhöfn í öllum skilningi þess orðs. Megi sá friður fylla hjörtu okkar allra og gefa öllum gleði lífins á hátíð sjómannadagsins. Eg óska Eyjamönn- um til hamingju með sjómannadag 2009.
SJOMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA