Bifröst

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2012 kl. 19:13 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2012 kl. 19:13 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Bifröst

Húsið Bifröst stendur við Bárustíg 11. Nafnið Bifröst er tekið úr goðafræði og var brúin á milli Miðgarðs og Valhallar. Húsið var byggt árið 1906 en það var stækkað á árunum 1930-1940.

Auk þess að vera íbúðarhús hefur Bifröst m.a. hýst rakarastofu Árna Böðvarssonar, billjardstofu á efri hæð, verslunina Markaðurinn, verslun Björns Guðmundssonar, Stafnes, Blómaverslun Ingibjargar Johnsen, Blómaverslun Ingibjargar Bernódusdóttur, Landterna, og Bjössabar.

Eigendur og íbúar

  • Ólafur Ólafsson 1909
  • Illugi Hjörtþórsson d. 1930
  • Árni Böðvarsson rakari og útgerðarmaður og María Eyvindardóttir
  • Tryggvi Guðmundsson
  • Eiríkur Þorsteinsson
  • Ragnar Benediktsson
  • Karl Jóhansson
  • Þorsteinn Sigurðsson
  • María Jónsdóttir
  • Jóhann Ágústsson
  • Þröstur Johnsen
  • Elías Bjarnhéðinsson



Heimildir

  • Bárustígur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.