Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1972/ Svalt er enn á seltu

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. febrúar 2018 kl. 13:50 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. febrúar 2018 kl. 13:50 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) (Ný síða: Svalt er enn á seltu
''Svalt er enn á seltu,''
''sjómenn vanir róa,''
''köld er undiralda,''
''árum skellur bára;''

(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Svalt er enn á seltu

Svalt er enn á seltu,
sjómenn vanir róa,
köld er undiralda,
árum skellur bára;
dylur dimmu éli
dagsbrún jökulkrúna;
svæfill sinnir ljúfum
svanna heima í ranni.

Föður minn á miði
móðir syrgði góðan -
köld er undiralda,
árum skellur bára;
bræður mína báða
bæjum sneyddi ægir —
svalt er enn á seltu,
sjómenn vanir róa.

Jónas Hallgrímsson